Kaffi Sunnó
Litla kaffihúsið okkar býður upp á ljúffenga súpu með heimabökuðu súrdeigsbrauði, heimabakað sætabrauð af ýmsu tagi, samlokur og smurt brauð. Kaffið okkar er brennt og malað á Stöðvarfirði í Kaffibrennslunni Kvörn.
Gestir safnsins geta setið úti í garðinum og notið veitinganna en einnig er góð aðstaða innandyra fyrir þá sem það kjósa.
Þeir sem eiga leið hjá og eru á hraðferð geta komið við í götulúgunni okkar og gripið með sér veitingar.
Kaffi Sunnó opnar 1. maí og er opið til 15. október.
Opið alla daga frá kl. 9.00-17.00.
Samstarfsaðilar:
Brauðdagar | Kaffibrennslan Kvörn